Skip to content
zeno
Create a Station
Explore
Religious
Music
News
Podcasts
Bible
By Genre
By Location
By Language
Download App
Opens in a new window
Toggle Sidebar
zeno
Fotbolti.net
Fotbolti.net
Professional
Icelandic
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Website
Episodes
Episodes
300
07 September 2026
Uppbótartíminn - Fáránleg spenna þegar deildin skiptist
Síðasta umferðin í Bestu deild kvenna fyrir skiptingu fór fram í kvöld. Núna er gríðarleg spenna framundan á bæði toppi og botni deildarinnar. Hvaða lið verður Íslandsmeistari og hvaða lið falla?Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Arnar Páll fóru yfir 18. umferðina og sitthvað fleira í Uppbótartímanum.Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
07 September 2026
Enski boltinn - Hver stoppar eiginlega Arsenal?
Arsenal fór með sigur af hólmi í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni, 2-1 gegn Chelsea.Manchester United fékk rýting í bakið á lokasekúndunni gegn Everton og Alexander Isak skoraði tvö mörk fyrir Liverpool í sigri gegn nýliðum Ipswich.Tottenham náði í sitt fyrsta stig og Manchester City vann tæpan sigur á nýliðum Coventry.Guðmundur Aðalsteinn fór yfir þessa leiki og helstu sögulínur...
06 September 2026
Innkastið - KR hatar gras og Blikar bulla
Innkastið eftir 22. umferð, síðustu umferðina fyrir tvískiptingu. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra.Stjarnan og Valur þurfa að sætta sig við að spila í neðri hlutanum en Keflvíkingar komust í efri hlutann þrátt fyrir tap á Ljósanótt.Farið er yfir alla leikina og einnig rætt um lokaumferð Lengjudeildarinnar sem var á laugardag.
04 September 2026
Útvarpsþátturinn - Haukar fljúga upp og lokaumferðir framundan
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.Guðjón Pétur Lýðsson þjálfari Hauka er gestur þáttarins en Hafnarfjarðarliðið er komið upp í Lengjudeildina.Lokaumferðir eru framundan um helgina, síðasta umferð fyrir tvískiptingu Bestu deildarinnar og svo ræðst hvaða lið fellur með Ægi úr Lengjudeildinni.Í lok þáttar er sumarglugginn í...
02 September 2026
Uppbótartíminn - Glötuð tækifæri og stórt kærumál
Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll Garðarsson komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og fóru yfir 17. umferð Bestu deildar kvenna. Toppliðin tvö hikstuðu bæði, aftur. FH hefur núna fengið tvö tækifæri til að komast á toppinn en ekki nýtt sér þau. Á hinum enda töflunnar er spennan gríðarleg.Þá var rætt um stórt kærumál sem getur haft mikil áhrif á framhaldið í Bestu deildinni. Þátturinn er í boði...
02 September 2026
38 umferðir - Er hægt að selja Bruno eftir þessa frammistöðu?
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta...
02 September 2026
Enski boltinn - Hull í draumalandi og glugganum lokað
Það eru fjögur lið með fullt hús stiga eftir tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni. Það eru Arsenal, Chelsea, Manchester City og.. Hull City.Það er óhætt að segja að Hull sé í draumalandi eftir fyrstu tvo leikina en fyrir tímabil var þeim spáð 20. sæti í flestöllum spám.Guðmundur Aðalsteinn fékk því Friðleif Friðleifsson, mikinn Hull stuðningsmann, í heimsókn í Coke stúdíóið í kvöld. Haraldur Örn...
01 September 2026
Innkastið - Ljúgum til um titilbaráttu
Innkastið eftir 21. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Runólfur Trausti.Þátturinn var tekinn upp strax eftir stórleik KR og Víkings. Fjallað er um leikinn sjálfan og allt í kringum hann. Auðvitað er síðan farið yfir allar helstu sögulínur í kringum hina leiki umferðarinnar.
01 September 2026
Harkið - Hiti í 3. deildinni
Harkið fór yfir stærstu atvikin í tuttugustu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild: 07:14 Uppgjör 2.deild:44:48 Spá: 01:29:00Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
01 September 2026
Kaffispjallið: Blæti fyrir takkaskóm og nýtt tækifæri í KR
Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, er nýjasti viðmælandi Kaffispjallsins. Líkt og vanalega var farið yfir víðan völl en Nördahornið og Hraðaspurningarnar eru að sjálfsögðu á sínum stað.